Jæja, þá er ekki neima einn túr eftir fyrir jól, svo það styttist í
að maður fer norður.
Hondan er komin á nagladekk og allt orðið klárt fyrir það

Enda má ég víst eiga von á hvítum jólum, svona til tilbreytingar,
fyrst ég verð fyrir norðan.
Það verður farið norður um 15. Desember og örugglega ekki komið
norður aftur fyrr en eftir áramót. Eini gallinn við það er sá
að þá næ ég ekki að vinna uppi í
Höll á annann í
jólum og áramótunum eins og mér finnst svo gaman

En það er
gaman að prófa eitthvað nýtt, alveg sérstaklega þar sem
Linda Kristín ætlar að fara með okkur norður
Það er ótrúlega margt búið að breytast hérna í íbúðinni hjá okkur.
Við ákváðum að kaupa okkur tvo þakglugga og láta setja þá í. Í
leiðinni var öllum
húsgögnum í stofunni og eldhúsinu hent, nema auðvitað glænýja
sófasettinu

Síðan skutumst við skötuhjúin í bæinn og drógum
Fanney vinkonu okkar í
verslunarleiðangur, versluðum okkur
sjónvarpsskáp,
DVD hillu,
sófaborð,
eldhúsborð,
eldhússtóla, allt í
birki. Keyptum líka gestasængur og kodda svo að nýji
svefnsófinn er endanlega kominn í gagnið
Síðan var íbúðin öll máluð, baðherbergið var tekið í gegn líka og
baðkarið lakkað upp á nýtt, svo það er eins og nýtt núna

Einnig voru flísarnar í ganginum brotnar upp og lagður hiti í
gólfið, flotað og flísalagt upp á nýtt. Það er óhætt að segja að
þessi íbúð er orðin
þokkalega flott!
En þær breytingar sem ég er samt ánægðastur með eru líklega þær að
ég keypti mér
nýjan
Pioneer magnara við
Bose heimabíókerfið
mitt, og
gamli
Pioneer magnarinn minn (sem er reyndar drullugóður) var settur
upp inn í svefnherbergi ásamt
DVD spilara og glænýju
Jamo
heimabíó-hátalarakerfi

Eini gallinn er sá að þetta er svo öflugt að ég þarf að herða
reglulega upp á eldhúsinnréttingunni svo hún hrynji ekki í sundur







En hvað er svo að frétta af ykkur, hvað langar ykkur í jólagjöf í
ár?